Birta á nýjum stað

Gleðilegt nýtt ár!

Birta hefur flutt aðsetur sitt tímabundið á Austurveg 36. Þar er einnig Smiðjan, miðstöð fólks án atvinnu, til húsa. Skrifstofa Birtu er á 2. hæð.

Birta færir Laufeyju Jónsdóttur framkvæmdastjóra Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Suðurlandi og starfsfólki svæðisskrifstofunnar bestu þakkir fyrir veitta aðstöðu á árunum 2009 og 2010.