Námskeið

Námskeið & fræðsla

Hjá Birtu er boðið upp á fjölbreytta fræðslu, námskeið og hreyfingu. Á morgnana, milli kl. 9-12, fer fram grunnstarf Birtu sem flestir mæta í.  Eftir hádegi eru í boði lokaðir hópar og námskeið sem þátttakendur velja sér (athugið að stundataflan er breytileg yfir árið).

Í grunnstarfi Birtu er boðið upp á fræðslu um bætta andlega líðan, lífsstílstengda fræðslu, eflingu í starf, sjálfseflingu, hópfundi o.fl. 

Dæmi um lokaða hópa/námskeið eru:

PEERS félagsfærninámskeið, Björg bjargráð í tilfinningastjórnun, kvíðahópar, félagskvíðanámskeið, karlahópar, konuhópar, skapandi starf, samkenndarhópur, meðferðarhópar þar sem áhersla er á áfallavinnu og samkennd, hópmarkþjálfunarhópar, næringarstuðningshópur, eldhúshópur, handavinnuhópur og D&D hópur. 

Hjá Birtu býðst þátttakendum að stunda fjölbreytta hreyfingu. Íþrótta- og heilsufræðingur er með þjálfun í tækjasal og teygjur og rúllur tvisvar sinnum í viku í World Class. Frá og með hausti 2025 hefur verið í boði að velja lokaðan Birtuhóp í Box800. Boðið er upp á tvo yoga tíma í viku; yoga nídra og blandaða tíma hjá Yogasálum.  Einnig er í boði vatnsleikfimitími einu sinni í viku. Yfir sumartímann er áhersla í hreyfingu á útivist og göngur.

560-2055
birta@birtastarfs.is
bættu færni þína til að takast á við hindranir

Námskeið 2026

Hér má sjá yfirlit yfir námskeið og lokaða hópa sem eru í boði á vorönn 2026, bæði hjá Birtu og Fræðslunetinu.

Til að fá nánari upplýsingar eða til að skrá sig þarf að ræða við ráðgjafa.

Skráðu þig

Námskeið og lokaðir hópar

Ham við félagsfælni

Námskeiðið er ætlað þeim sem upplifa hamlandi kvíða og óöryggi í samskiptum og félagslegum aðstæðum.

Á námskeiðinu verður meðal annars unnið með eftirfarandi:

  • Hvað er félagskvíði og hvernig hefur hann áhrif á líf mitt?
  • Hvernig get ég náð betri stjórn á kvíðanum?
  • Hvernig get ég stoppað vítahringinn

Kenndar eru aðferðir sem hægt er að nota í flestum aðstæðum þar sem félagskvíðinn kemur upp. 

Listmeðferð - lokaður hópur

Í listmeðferðinni er unnið á skapandi hátt með sjálfsmynd, lífsreynslu, tilfinningastöðu og framtíðarsýn. Hver þátttakandi vinnur út frá sínum eigin forsendum og engin krafa er gerð um listræna færni.

Viðfangsefnin tengjast bæði almennum og persónulegum þemum sem styðja við sjálfsskoðun, sjálfskilning og uppbyggingu. Lögð er áhersla á að skapa öruggt rými þar sem trúnaður, traust og tengsl eru í fyrirrúmi. Hver einstaklingur hefur sína sérstöðu og er jafnframt mikilvægur hluti af hópnum.

Markhópur:

Hentar þeim sem vilja vinna með sjálfsmynd, tilfinningar og lífsreynslu á skapandi hátt, efla sjálfsskilning og finna nýjar leiðir til tjáningar og tengsla.

Velkomin í skapandi og styrkjandi ferðalag.

Fjöldi þátttakenda: 8–10 einstaklingar

Athugið að fyrstu sex tímarnir verða í Fjölheimum og seinni sex í Ölfusi þar sem Elísabet er með aðstöðu. 

Atvinnuleit og rútína

Lokaður hópur fyrir þá sem eru á lokastigi starfsendurhæfingar og eru komnir í virka atvinnuleit. Notaðar verða aðferðir markþjálfunar til að styðja við þátttakendur í atvinnuleit og í að halda góðri rútínu og virkni meðan á atvinnuleit stendur.  Hópurinn hittist vikulega í klukkutíma í senn, í sex skipti. 

Björg – bjargráð í tilfinningastjórnun

Bjargráðakerfið Björg var þróað af Dr. Julie Brown og byggist á aðferðafræði díalektískrar atferlismeðferðar (DAM).

Með aðferðum DAM er einstaklingum kennt að staðfesta og samþykkja hverjir þeir eru, en á sama tíma að aðstoða og leiðbeina þeim að gera hjálpsamlegar breytingar sem stuðla að stöðugra tilfinningalífi. Núvitund er mikilvægur hluti af DAM. Áhersla er á að draga úr hvatvísi, ná stöðugleika í samböndum við sjálfan sig og aðra og að auka við sjálfsvirðingu. Á námskeiðinu eru kennd 9 bjargráð og kerfistæki (tilfinningamælir, gerðir bjargráða og uppskrift að bjargráðum).

Þátttakendur fá veglega handbók með verkefnum og lesefni.

Stökkpallur - námsleið í samstarfi við Fræðslunetið

Stökkpallur er 180 klst. námsleið sem kennd er í grunnstarfi Birtu á vorönn, í samstarfi við Fræðslunetið. Kenndir eru þrír námsþættir; Markmiðasetning og sjálfsefling, samskipti og samstarf, Vinnuumhverfi og vinnustaðir. Þeir sem taka einingar fara í 34 klst. vinnustaðanám. Námsleiðin gefur 10 einingar á framhaldsskólastigi. 

Leirlistanámskeið fyrir byrjendur

Langar þig að læra að vinna með leir og skapa þín eigin verk? Á þessu námskeiði kynnist þú grunnatriðum í leirvinnslu og færð tækifæri til að prófa mismunandi aðferðir og tækni. Námskeiðið er sérstaklega ætlað byrjendum og hentar öllum sem hafa áhuga á skapandi starfi.

Hvað er kennt?

  • Grunntækni í mótun leirs
  • Notkun verkfæra og efna
  • Undirstöðuatriði í þurrkun og brennslu
  • Sköpun einfaldra hluta og listaverka
Skráðu þig

Virkniúrræði á vorönn 2026

01

HAM og núvitund hugræn atferlismeðferð

Námskeið byggt á hugrænni atferlismeðferð til að takast á við almenna líðan. Þátttakendur fá fræðslu (HAM) sem gengur út á að læra að þekkja tengsl hugsana, tilfinninga og hegðunar. Farið verður í undirstöðuatriði núvitundar sem leið til að takast á við tilfinningar og streitu. Markmiðið er að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita þeim aðferðum sem kenndar verða til að hafa áhrif á eigin líðan. Þátttakendur vinna heimaverkefni á milli skipta.

02

Lífsstíl og verkjastjórnun

Námskeiðið byggir á líkamsmiðaðri og sálrænni nálgun á verki. Með aðferðum samkenndar,
hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) og núvitundar verða kynnt og bjargráð sem hjálpa til við að takast á við verki í daglegu lífi og stuðla að heilbrigðum lífsstíl.

Markmið námskeiðsins er að hjálpa þátttakendum að: öðlast betri skilning og stjórn á verkjum, draga úr ákefð og tíðni verkja, draga úr áhrifum verkja og veikinda á líf þátttakenda, takast á við kveikjur þannig að einstaklingar upplifi færri
bakslög og aukna stjórn í daglegu lífi og að auka lífsgæði.

03

Uppleið – leiðir til að hafa áhrif á líðan – vottuð námsleið

Námið byggir á hugrænni atferlismeðferð (HAM). Markmiðið er að auka færni einstaklinga til að takast á við hamlandi líðan með því að nýta sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar í daglegu lífi og breyta þannig hugsun, tilfinningum og hegðun og í kjölfarið viðhalda betri líðan.

04

Betri fjármál - fjarnámskeið á ensku

Námskeiðið hentar öllum sem vilja gera breytingar í fjármálunum og tileinka sér nýjar aðferðir og
skipulag. Áhersla er á að öðlast næga þekkingu til að geta stýrt fjármálunum af öryggi og geta sett
sér raunhæf markmið. Farið verður yfir helstu hugtök í fjármálum, þær ,,vörur” sem bankar og
fjármálafyrirtæki bjóða og þann kostnað sem þeim fylgir. Þá verður farið í uppsetningu á einföldu
skipulagi, hvernig hægt er öðlast betri yfirsýn yfir fjármálin og ýmis verkfæri kynnt til að nýta fjármuni
sem best.

05

Augnablikið – núvitundarnámskeið

Núvitund í daglegu lífi. Hvað er núvitund og hentar hún mér? Námskeið um núvitund og lífeðlisfræðileg áhrif þess að iðka núvitund. Þátttakendur fá tækifæri til að kynnast þeim leiðum sem
hægt er að fara í iðkun núvitundar. Rannsóknir sýna að núvitund gagnast vel til að takast á við
t.a.m. tilfinningar, streitu, svefn og verki. Einnig að iðkun á núvitund getur gefið fólki betra innsæi í
tilfinningar sínar, betri athygli, minni og einbeitingu.

06

Raunfærnimat í almennri starfshæfni

Almenn starfshæfni er sú hæfni sem einstaklingur þarf að búa yfir eða tileinka sér til þess að taka á virkan þátt þátt í samfélaginu, vera á vinnumarkaði og þróast í starfi. Hún er mikilvæg í öllum störfum og hana má flytja í annað samhengi og milli mismunandi starfa og starfsgreina. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur skilgreint 11 hæfniþætti sem saman mynda almenna starfshæfni á íslenskum vinnumarkaði (aðlögunarhæfni, ábyrg nýting, árangursrík samskipti, jafnréttisvitund, mat og lausnir, upplýsingatækni, samvinna, skipulagshæfni, starfsþróun, upplýsingalæsi og vinnusiðferði). Hæfniþættirnir eru þrepaskiptir í samræmi við hæfniramma um íslenska menntun.

Raunfærnimatið hentar fólki sem er á krossgötum, er leitandi eða er að velta fyrir sér nýju starfi. Einnig fólki í starfsendurhæfingu sem t.d. hefur orðið fyrir kulnun. Ferlið getur reynst mjög eflandi þar sem fólk áttar sig á eigin styrkleikum, sækir jafnvel um störf sem það treysti sér ekki til áður, fær
vinnu eða hefur nám.

Ferlið: Skimunarviðtal, hópavinna í 4-5 skipti, matssamtal, niðurstöðuviðtal hjá náms- og starfsráðgjafa (samtals 7-8 skipti).

Önnur úrræði: Íslenskunámskeið (sjá heimasíðu Fræðslunetsins). Náms- og starfsráðgjöf. Áhugasviðskannanir. Námsbrautir FA. Grunnmennt (vorönn). Menntastoðir – Félagsliðagátt – Leikskólaliðabrú – Stuðningsfulltrúabrú • Hægt er að taka staka áfanga á þessum námsleiðum og fá þá metna inn í annað nám. Raunfærnimat; s.s. sjúkraliðar, almenn starfshæfni, þjónustubrautir (félagsliði, leikskólaliði og stuðningsfulltrúi) og matartækni.