Birta er með samning við VIRK starfsendurhæfingarsjóð um þjónustu á sviði starfsendurhæfingar.  Til þess að komast í þjónustu hjá Birtu þarf fyrst að leita til VIRK.

Einstaklingur sem óskar eftir þjónustu VIRK þarf að byrja á að panta tíma hjá sínum lækni og óska eftir beiðni fyrir starfsendurhæfingu.

Ef læknir telur einstakling hafa þörf fyrir starfsendurhæfingu þá sendir hann beiðni til VIRK.

Farið er yfir allar beiðnir sem berast til VIRK og þeim sem uppfylla skilyrði um þjónustu samkvæmt lögum nr. 60/2012 er gefinn tími hjá ráðgjafa.

Ráðgjafi hefur síðan samband við einstaklinginn símleiðis og boðar hann í viðtal. Í samráði við fagaðila hjá VIRK getur verið ákveðið að einstaklingur fari í endurhæfingu hjá Birtu og sendir þá ráðgjafi VIRK beiðni þar um til Birtu.

Nánari upplýsingar um VIRK Starfsendurhæfingarsjóð má finna á heimasíðu VIRK.