Thursday, February 09, 2012

Um Okkur
Minimize

Stofnun Starfsendurhæfingar Suðurlands

Stofnfundur Starfsendurhæfingar Suðurlands var haldinn þann þann 19. maí 2009. Aðdraganda stofnunarinnar má rekja til haustsins 2008 en þann 28. október 2008 var haldinn kynningarfundur í fundarsal þjónustuskrifstofu stéttarfélaga um starfsendurhæfingu á Suðurlandi. Í kjölfar kynningarfundarins var skipaður undirbúningshópur og síðar starfshópur sem í voru Svava Jónsdóttir frá Smfs, Guðný Ingvarsdóttir frá Lífeyrissjóðnum Festa og María Kristjánsdóttir félagsmálastjóri í Hveragerði.
Í janúar 2009 var Starfsendurhæfingu Suðurlands gefið nafnið Birta eftir óformlega nafnasamkeppni meðal stjórnar Birtu og samstarfsaðila. Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir verkefnastjóri hjá Fræðsluneti Suðurlands á heiðurinn að nafni og merki Birtu.

 

Stofnaðilar Birtu

Stofnaðilar eru; Sveitarfélagið Árborg, Sveitarfélagið Ölfus, Hveragerðisbær, Rangárþing ytra, Festa lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður Rangæinga, Báran stéttarfélag, Verkalýðsfélag Suðurlands, FOSS Suðurlandi, Verslunarmannafélag Suðurlands, Félag iðn- og tæknigreina, Vinnumálastofnun Suðurlandi, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Rauði Krossinn Árnesingadeild, Samtök Sunnlenskra sveitarfélaga, Fræðslunet Suðurlands, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Heilsustofnun NLFÍ og Smfs. 

 

Stjórn Starfsendurhæfingar Suðurlands

Formaður er María Kristjánsdóttir félagsmálastjóri í Hveragerði
Ritari er Sigurlín Guðný Ingvarsdóttir frá lífeyrissjóðinum Festa
Aðrir í stjórn eru:
Magna F. Birnir hjúkrunarfræðingur á HNLFÍ
Ásmundur S. Pálsson framkvæmdastjóri Fræðslunets Suðurlands
Már Guðnason formaður stéttarfélaganna á Suðurlandi

 

Starfsfólk Birtu

Forstöðumaður: Sandra Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi.
Verkefnastjóri líkamlegrar endurhæfingar: Elísabet Kristjánsdóttir, íþrótta- og heilsufræðingur
Umsjónarmaður skólahóps
: Svala Sigurgeirsdóttir, líffræðingur og kennari.


Hvar er Birta til húsa?

Birta er staðsett í gamla Sandvíkurskóla v/Bankaveg. Gengið inn í stjórnunarálmu. Kennsla fer að mestu leyti fram í  húsnæði Fræðslunets Suðurlands í Iðu við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Frá og með haustinu 2012 mun kennslan fara fram í Sandvíkurskóla v/Bankaveg. Líkamsþjálfun fer fram í Sportstöðinni á Selfossi.

 

Hvernig er hægt að hafa samband?

Ráðgjafar Birtu eru með skrifstofu á Austurvegi 36. Síminn á skrifstofunni er 482-1390, GSM er 860-3390. Netfang Birtu er birta@birtastarfs.is.


Helstu markmið með starfsendurhæfingu hjá Birtu

- Að endurhæfa þátttakendur til atvinnuþátttöku og þar með auka lífsgæði þeirra og fjölskyldna þeirra.

- Að þátttakendur fari í atvinnu að endurhæfingu lokinni, jafnvel að loknu frekara námi.

- Að endurhæfingin fari almennt fram í heimabyggð.

 

Fyrir hverja er Birta?

- Fólk sem hefur lent utan vinnumarkaðar af einhverjum ástæðum en vill styrkja stöðu sína með það að markmiði að komast aftur á vinnumarkað. 

- Fólk með skerta vinnufærni af ýmsum orsökum.

- Einstaklinga með örorkumat eða endurhæfingarlífeyri og einstaklinga sem fá greiðslur frá lífeyrissjóðum, atvinnuleysisbætur eða fjárhagsaðstoð frá sveitarfélögum. 

- Miðað er við að einstaklingar séu á aldrinum 18-55 ára.

  
Privacy Statement  |  Terms Of Use
Copyright 2009 by BirtaStarfs.is