Thursday, February 09, 2012

Stundatafla vorönn 2012
Minimize
 TitleOwnerCategoryModified DateSize 
JanúarBirta Starfsendurhæfing 1/19/201258.51 KBDownload
Febrúar - DRÖGBirta Starfsendurhæfing 1/19/201243.42 KBDownload
  
Fréttir
Minimize
Síðasta vika fyrstu lotu á vorönn - Thursday, February 02, 2012

 

Nú er síðasta vika fyrstu lotunnar á vorönn 2012 að klárast.

Þemað í fyrstu lotunni var jákvæður janúar og voru þátttakendur meðal annars með vinnustofu um hamingjuna og jákvæða sálfræði. Þá hafa verið hópfundir, námskeiðið Efling í starfi fór af stað, og fyrirlestrar um andlega og líkamlega líðan. Nokkrir þátttakendur fóru á byrjendanámskeið í silfursmíði á vegum Fræðslunets Suðurlands og líkaði mjög vel. Þá hafa þátttakendur verið duglegir í hópþjálfun í ræktinni og þeir allra hörðustu hafa mætt í gönguhóp.

Fjörugir föstudagar eru að hefjast hjá okkur föstudaginn 3. febrúar en á fjörugum föstudögum fáum við til okkar gestakennara sem kynna fyrir okkur fjölbreytta heilsurækt. Næst komandi föstudag kemur Kristjana Árnadóttir og kynnir fyrir okkur yoga. Tíminn verður í Sportstöðinni kl. 11.

Í næstu viku mæta allir þátttakendur í viðtal hjá Söndru eða Betu og hreyfingin verður á sínum stað. 13. febrúar hefst síðan lota númer tvö hjá Birtu. Drög að stundatöflu eru komin á heimasíðuna en endanleg tafla verður birt í næstu viku. Henni verður dreift í einstaklingsviðtölum.

 
Birta starfsendurhæfing flytur - Thursday, January 19, 2012

 

Birta starfsendurhæfing flytur starfsemi sína í Sandvíkurskóla v/Bankaveg í dag 19. janúar 2012.

Skrifstofan opnar á nýjum stað föstudaginn 20. janúar.  Röskun á starfinu ætti ekki að verða mikil vegna þessa.

Hlökkum til að sjá ykkur á nýjum stað!

Kveðja, Sandra, Beta og Svala.

 
Starf Birtu á vorönn 2012 - Tuesday, January 17, 2012

Vorönn 2012

Vorönn Birtu hófst með hópfundi skólahóps þann 5. janúar og starfshóps þann 6. janúar.

Þó nokkrar breytingar hafa verið gerðar á starfi Birtu á vorönn frá því sem verið hefur.

Helsta nýjungin í starfinu er sú að vorönninni er skipt niður í fimm lotur sem eru í þrjár til fjórar vikur. Tilgangurinn  með því er að auðvelda þátttakendum að setja sér markmið og halda út endurhæfingartímabilið. Á milli tímabila er gert vikuhlé á námskeiðum og fyrirlestrum og þátttakendur fara í viðtal til ráðgjafa þar sem farið er yfir tímabilið og sett markmið fyrir nýtt tímabil.

Jákvæður janúar!

Í janúar er þemað jákvæður janúar. Á mánudögum er námskeiðið jákvæður janúar, vinnustofa um hamingjuna og jákvæða sálfræði. Á þriðjudögum er hópfundur og námskeiðið efling í starfi, á miðvikudögum verða fyrirlestrar tengdir líkamlegri og andlegri heilsu. Þjálfun í tækjasal verður á mánudögum og þriðjudögum og ganga á miðvikudögum. Síðar á önninni byrja þátttakendur í starfsþjálfun og eru fimmtudagar hugsaðir í það.

Á döfinni:

Sjálfsstyrkingarnámskeið í febrúar.
HAM námskeið í janúar/febrúar.
Fjörugir föstudagar (tilbreyting í líkamsrækt).
Glerlistarnámskeið hefjast aftur í febrúar.

Námskeið hjá Fræðsluneti Suðurlands sem þátttakendur eiga kost á að sækja:

Nám og þjálfun - undirbúningur fyrir frekara nám.
Smiðjan - í samvinnu við Stúdíó Sýrland.
Skrifstofuskólinn.
Skapandi starf:
Silfursmíði.
Stafrænar ljósmyndir.
Frekari upplýsingar um námskeið Fræðslunetsins er að finna á heimasíðu þeirra: www.fraedslunet.is

 
Hauststarfið hjá Birtu - Thursday, September 01, 2011

Hauststarf Birtu hefst 5. september samkvæmt stundatöflu (sjá hér til hliðar)

VIð byrjum mánudaginn 5. september, kl. 13.00-15.30. Við verðum í stofu 6 í Iðu við Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Á mánudag og þriðjudag verðum við með kynningu á stundatöflunni, starfi Birtu og svo ætlum við að kynnast öll aðeins betur  :)

Á miðvikudaginn byrjum við í heilsueflingu - fræðsluhluta, á fimmudaginn byrjum við á SMS sjálfsstyrkingarnámskeiði og á föstudaginn byrjar Úr frestun í framkvæmd námskeið.

Það verður því nóg um að vera fyrstu vikuna í Birtu :)

Munið að mæta tímanlega!

Hlökkum til að sjá ykkur!

Sandra og Beta

 
Sumarfrí Birtu - Wednesday, June 08, 2011

 

Birta verður í sumarfríi frá og með 20.júní og fram í byrjun ágúst. Þátttakendur á haustönn Birtu fá upplýsingar um hvenær starfið hefst á ný þegar nær dregur.

 
Spurningarkeppni Birtu - Thursday, May 26, 2011

 


 

Birta var með spurningarkeppni fyrr í vikunni. Þrjú lið kepptu. Spurt var úr fréttum sl. viku og var keppnin æsispennandi. Liðið sem vann fékk vegleg verðlaun frá Office 1, Sjafnarblómum og Subway. Birta þakkar þessum fyrirtækjum fyrir góðar gjafir og veittan stuðning. 

 
Útskrift Birtu vorið 2011 - Thursday, May 12, 2011

Útskrift!

Þriðjudaginn 17.maí n.k. munu 11 þátttakendur Birtu útskrifast. Athöfnin verður haldin í Iðu kl.11 og að henni lokinni munum við gera ýmislegt skemmtilegt saman og grilla í tilefni dagins 

 
Vor- og sumarönn Birtu - Tuesday, May 03, 2011

 

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn  

 

 

Nú er sumarönn Birtu að hefjast. Stundatöflu fyrir maí er að finna hérna vinstra megin á forsíðunni. Við breytum til og aukum útivist og skapandi starf í sumar. 

 
Birta á nýjum stað - Tuesday, January 04, 2011

Gleðilegt nýtt ár!

Birta hefur flutt aðsetur sitt tímabundið á Austurveg 36. Þar er einnig Smiðjan, miðstöð fólks án atvinnu, til húsa. Skrifstofa Birtu er á 2. hæð.

Birta færir Laufeyju Jónsdóttur framkvæmdastjóra Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Suðurlandi og starfsfólki svæðisskrifstofunnar bestu þakkir fyrir veitta aðstöðu á árunum 2009 og 2010.

 

 
Hauststarf Birtu hefur farið vel af stað - Friday, October 22, 2010


Hauststarf Birtu hefur gengið vonum framar. Fjölmargar tilvísanir og umsóknir bárust og var því miður ekki hægt að útvega öllum pláss. 10 manns af 17 þátttakendum frá því í vor héldu áfram og 13 nýjir bættust við. 23 þátttakendur stunda því starfsendurhæfingu á vegum Birtu í haust. 7 þátttakendur eru í starfsþjálfun og gékk vel að útvega þátttakendum starfsþjálfunarstað. Allir þeir atvinnurekendur sem haft var samband við voru jákvæðir gagnvart verkefninu. Flestir fengu pláss þar sem þeir óskuðu eftir að komast.

 
Fyrsti hópur Birtu hefur starfsendurhæfingu - Sunday, March 14, 2010

 

Þann 1. mars 2010 hóf fyrsti hópur Birtu starfsendurhæfingu. Í hópnum eru 17 einstaklingar víðsvegar af Suðurlandi. Kennsla fer fram í húsnæði Fræðslunets Suðurlands sem er í Iðu við Fjölbrautaskóla Suðurlands.
 

 
Nýr vefur tekinn í notkun - Tuesday, February 09, 2010

 

Nýr vefur hefur verið tekinn í notkun. Hér á þessum vef munum við útskýra starfsemi félagsins, starfsmönnum og helstu markmiðum bæði í máli og myndum.

Fréttir verða birtar af starfsemi félagsins hér og jafnvel verður hægt að skoða myndir úr daglegu lífi.

 
  
Hlekkir
Minimize
  
Dagatal
Minimize
Archive
<February 2012>
SunMonTueWedThuFriSat
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829123
45678910
Monthly
Hægt er að panta viðtal hjá ráðgjafa Birtu í síma 482-1390. gsm,860-3390 . Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið birta@birtastarfs.is.
  
Privacy Statement  |  Terms Of Use
Copyright 2009 by BirtaStarfs.is